Úrlausnir í öldrunarþjónustu.
4.3.2007 | 18:23
Öldruðum einstaklingum er að fjölga til muna í samfélaginu. Það er mjög ánægjulegt að heilbrigðiskerfið er að bæta heilbrigðisþjónustuna í landinu. Staðreindin er að með betri og vel skipulagðri heilbrigðisþjónustu lengist líftími einstaklinga. Fólk er lengur virkt í starfi sem og í samfélaginu í heild. En þegar heilsan bregst þurfa einstaklingar á aðstoð okkar að halda. En hverning getum við þá aðstoðað einstaklingana? Hvað er í boði? Ef fólk veikist alvarlega leggst það inn á sjúkrahús. Fólki batnar og útskrifast og fer síðan heim. En fyrstu dagarnir eru oftast frekar erfiðir. Sjúklingar eru slappir og þreyttir eftir minnstu áreynslu. Oftast er lyfjameðferðinni haldið áfram heima eftir útskrift, sem og umbúðaskiptum á sárum. Þar kemur heimahjúkrun sterk inn til aðstoðar og til þess að fylgja þessum einstaklingum eftir með umönnum. En því miður vegna skorts á starfsfólki er þessi þjónusta oft takmörkuð. Það þarf því að efla heimaþjónustuna til muna þannig að hún sé aðgengileg fyrir alla og létti undir með heilbirgðiskerfinu. Öryggi skiptir mestu máli fyrir einstaklinga og fjölskyldur þeirra.
Athugasemdir
Kochany Grazina! Líttu endilega inn á síðuna mína. Ég var að þýða ljóð eftir Wislawa Szymborska. Með kærri kveðju, Bardzo dobche!
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir, 4.3.2007 kl. 21:30
Það þarf að efla heimahjúkrun til muna svo hún nýtist ekki aðeins sjúklingum sem útskrifast af spítölum, heldur að einnig sé hún valkostur fyrir þá sem þurfa á heimahjúkrun vegna öldrunar að halda þ.e. valkostur fyrir hjón að fá hjúkrun heim á móti því að verða aðskilin vegna þess að annað fer inn á stofnun en hitt er eftir heima.
Vilborg G. Hansen, 5.3.2007 kl. 08:39
Ég hef notið heimahjúkrunar og hefði þurft að leggjast inn á yfirfulla bakteríudeild ef hennar hefði ekki notið við. Frábær þjónusta og margfallt ódýrari.
Jón Sigurgeirsson , 5.3.2007 kl. 16:37
Takk fyrir athugasemdir, það er gaman að heyra skoðanir hjá fleirum um nauðsynlega eflingu hejmahjúkrunar.
Grazyna María Okuniewska, 5.3.2007 kl. 18:32
Sæl Grazyna María Okuniewska.
Það sem mér finnst eftir að hafa lesið það sem þú ert að fjalla um finnst mér mjög gott hjá þér og hvað þú upplýsir þína landa hvað er að ske í okkar þjóðfélagi.
Þetta eru góð rök hjá þér og mættu margir lesa hvað þú ert að fjalla um.
Endilega að skrifa á þínu tungumáli svo að þínir landar geta verið með í umræðunni og að þeir geti upplýst okkur hvað þeim er ofarlega í huga og hvað við getum gert betur á Íslandi.
Með bestu kveðju.
Jóhann Páll Símonarson.
Jóhann Páll Símonarson (IP-tala skráð) 6.3.2007 kl. 23:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.